Bjartir dagar á Bókasafni Hafnarfjarðar
Bjartir dagar verða haldir í Hafnarfirði dagana 24.-28. apríl. Bókasafn Hafnarfjarðar tekur þátt í gleðinni og býður upp á ýmsa viðburði á meðan á hátíðinni stendur.
Dagskrá:
Miðvikudagur 24. apríl
- Geðveikar húsmæður - kl. 17:30
Harpa Rún Kristjánsdóttir, bókmenntafræðingur, fjallar um sturlun kvenna og sveitasamfélag í skáldsögunum Dalalífi eftir Guðrúnu frá Lundi og Ljósu eftir Kristínu Steinsdóttur.
Fimmtudagur 25. apríl (Sumardagurinn fyrsti)
- Lokað á bókasafninu
Föstudagur 26. apríl
- Spilað, litað og lesið - kl. 11:00 - 17:00
Í boði verður að spila og lita á barna- og unglingadeild. Fullt af skemmtilegum spilum í boði.
Laugardagur 27. apríl
- Dr. Bæk - kl. 11:00 - 13:00
Hvetjum alla hjóleigendur að koma með hjólhesta sína í fría ástandsskoðun hjá doktornum í upphafi sumarsins.
- Upplestur, Nærbuxnaverksmiðjan - kl. 13:00
Arndís Þórarinsdóttir les upp úr bók sinni Nærbuxnaverksmiðjan.