Kynstrin öll - jólabókadagskrá Bókasafns Hafnarfjarðar - 1. og 2. hluti
Bókasafn Hafnarfjarðar mun bjóða upp á jólabókahamingju líkt og fyrri ár; Kynstrin öll munu að sjálfsögðu verða á sínum stað, þann 17. og þann 25. nóvember, - beint frá Bókasafni Hafnarfjarðar. Frábærir gestir munu vitja okkar, lesa úr rjóma jólabókanna og sitja svo undir spurningum í umræðum leiddum af Arndísi Þórarinsdóttur, bókmenntafræðingi með meiru.
Vegna samkomutakmarkana verða viðburðirnir í streymi.
Þann 17. nóvember kl. 20:00 koma til okkar þrír höfundar:
- Auður Ava Ólafsdóttir: Dýralíf
- Jón Kalman Stefánsson : Fjarvera þín er myrkur
- Ragnar Jónasson : Vetrarmein
- Smellið hér til að komast á streymið
Þann 25. nóvember kl. 20:00 koma til okkar þrír höfundar:
Ásdís Halla Bragadóttir: Ein
- Benný Sif Ísleifsdóttir: Hansdætur
- Lilja Sigurðardóttir: Blóðrauður sjór
- Smellið hér til að komast á streymið
Þau munu lesa úr nýútkomnum bókum og taka létta kryddsíld á verk sín ásamt Arndísi Þórarinsdóttur, bókmenntafræðingi.
Áhorfendur geta sent inn spurningar og kastað fram hugmyndum á miðlum í þessari gagnvirku útsendingu, sem er sú fyrsta sem Bókasafn Hafnarfjarðar stendur fyrir á opinberum vettvangi.
Útsendinguna má nálgast á Facebook, á Heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar og á gagn-birtum miðlum. Hlekkur á streymi mun birtast í þessum viðburði er nær dregur.
Gleðilega bókaaðventu!