Lokun vegna COVID-19
Kæru gestir,
Bókasafn Hafnarfjarðar verður lokað frá og með 8. október til og með 19. október í ljósi hertra sóttvarnaraðgerða vegna COVID-19 faraldursins. Öllum viðburðum hefur verið frestað eða aflýst.
Starfsfólk mun nýta tímann til að huga að safneign, breytingum og öðru innra starfi á meðan og hlakkar til að taka á móti gestum þegar safnið opnar á ný.
Gildistími bókasafnsskírteina framlengist sem nemur lokun Bókasafnsins og ekki verða lagðar sektir á safnkost á tímabilinu. Skiladagur allra bóka hefur verið framlengdur til 26. október.
Athugið að ekki verður hægt að skila gögnum á meðan að á lokun stendur.
Með kveðju,
Starfsfólk Bókasafns Hafnarfjarðar