Luktarganga - St. Martin
Laugardaginn 10. nóvember kl. 17 stendur Þýsk-íslenska tengslanetið fyrir hinni árlegu luktagöngu í tilefni af Marteinsmessu.
Gestir koma saman við Bókasafn Hafnarfjarðar með luktirnar sínar og gengið er í kringum Hellisgerði með sjálfan St. Martin í broddi fylkingar.
Að göngu lokinni er boðið upp á þýskar veitingar, Weckmänner og Pretzel, á jarðhæð bókasafnsins.
Allir velkomnir!