Safnanótt
Safnanótt verður haldin hátíðleg föstudaginn 8. febrúar frá kl. 19:00 til 24:00. Söfn á höfuðborgarsvæðinu, þar með talið Bókasafn Hafnarfjarðar, Byggðasafn Hafnarfjarðar og Hafnarborg, opin til miðnættis og boðið verður upp á skemmtilega viðburði og sýningar. Dagskrá verður borin í hús með Fréttablaðinu. Ókeypis „safnanæturstrætó“ gengur á milli safnanna.
Dagskrá Safnanætur á Bókasafni Hafnarfjarðar
Frá kl. 19:00 til 24:00 verður boðið upp á eftirtaldar sýningar:
- Dúkkulísurnar
Hljómsveitin Dúkkulísurnar sýnir muni frá ferli sínum. Hljómsveitin var stofnuð árið 1982 og vann Músíktilraunir ári síðar. Hver man svo ekki eftir „Pamelu í Dallas“? - Hraunið í myrkrinu
Helga Ingólfsdóttir sýnir einstakt handverk unnið úr hrauni. Helga vinnur einnig með lýsingu. Sýningin á einkar vel við í „bænum í hrauninu.“ - Magnað myrkur - listasýning leikskólabarna
Börn frá Leikskólanum Hvammi sýna verk tengd „mögnuðu myrkri.“ Meðal listaverka þeirra er stór tröllskessa. - Ratleikur um bókasafnið
Vegleg verðlaun í boði Gló, Ísbúðar Vesturbæjar og Bókasafns Hafnarfjarðar. Dregið verður úr réttum lausnum 11.02.2013.
Eftirtaldir viðburðir standa ekki allt kvöldið heldur eru á afmörkuðum tímum:
- Kl. 19:00 - 20:30
Spáð í spilin!
Sigríður Klingenberg spáir fyrir gestum Safnanætur. Fólk fær að draga spáspil og -steina. - Kl. 19:30 - 21:30
Kvikmyndasýning í fjölnotasal á vegum Goethe Institut, þýska bókasafnsins
Renn wenn du kannst
Ben, sem er í hjólastól, myndar ásamt aðstoðarmanni sínum og ungri konu ástarþríhyrning og reynir það töluvert á vináttuna. - Kl. 20:30 - 21:00
Karlakór Sjómannaskólans
Kórinn syngur nokkur lög og er um að gera að mæta og hlusta á kröftugan söng. - Kl. 21:30 - 23:30
Kvikmyndasýning í fjölnotasal á vegum Goethe Institut, þýska bókasafnsins
Drei
Par á fimmtugsaldri verður ástfangið af sama manninum. Málin flækjast svo verulega þegar konan verður ólétt. - Kl. 22:00 - 23:00
CeaseTone - Hafsteinn Þráinsson
Hafsteinn tekur lagið og kynnir um leið disk sinn, „Pandora's Music Box.“